Um er að ræða þriggja ára rannsóknarsamstarf Evrópulanda á sviði hugvísinda. Þessi auglýsing eftir umsóknum ber yfirskriftina „Public Spaces: Culture and Integration in Europe“ og skulu rannsóknirnar falla að því efni.
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í HERA (evrópskt rannsóknarnet hugvísinda)
Auglýst er eftir umsóknum í Æskulýðssjóð
Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Æskulýðssjóði til verkefna sem tengjast tilgangi sjóðsins. Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 16. október 2017 kl.16.00.
Rannsóknaþing 2017 og afhending Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs
Rannsóknaþing 2017 verður haldið fimmtudaginn 21. september á Grand Hótel Reykjavík undir yfirskriftinni Heimur örra breytinga.
Námskeið um fjármál og uppgjörsreglur í Horizon 2020 rannsókna- og nýsköpunaráætlun ESB
Miðvikudaginn 18. október stendur Rannís, í samstarfi við Félag rannsóknastjóra á Íslandi, fyrir heilsdags námskeiði um fjármál og uppgjörsreglur í Horizon 2020 .
Málstofa um frumkvöðla- og nýsköpunarmennt
Rannís býður til opinnar málstofu um frumkvöðla- og nýsköpunarmennt, mánudaginn 9. október kl. 13:00-17:00, í sal Samiðnar, Borgartúni 30, 6. hæð.
Dr. Anton Karl Ingason, lektor í íslenskri málfræði og máltækni, hlýtur Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs 2017
Hvatningarverðlaun Vísinda-og tækniráðs voru afhent við hátíðlega athöfn á Rannsóknaþingi Rannís sem fram fór á Grand Hótel í morgun.
Styrkir úr Tónlistarsjóði 2017
Rannís auglýsir eftir styrkumsóknum úr Tónlistarsjóði til verkefna sem efnt verður til á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2018.
Vinnuáætlanir Horizon 2020 fyrir árin 2018-2020
Horizon 2020 er stærsta rannsóknaráætlun ESB. Áætlunin fjármagnar rannsóknir og nýsköpun á öllum sviðum vísinda og fræða og nær til áranna 2014-2020.
Kynning á EURAXESS samstarfsnetinu og rannsóknaumhverfinu í Kína
Föstudaginn 13. október nk. verður haldin kynning á EURAXESS samstarfsnetinu. Farið verður yfir skipulag og þjónustu Euraxess á Íslandi og þann stuðning sem veittur er rannsakendum sem hafa áhuga á að starfa í öðru landi.
Mikill áhugi á frumkvöðla- og nýsköpunarmennt
Mánudaginn 9. október sl. stóð Rannís fyrir málstofu um frumkvöðla- og nýsköpunarmennt. Tilefnið var koma þriggja sérfræðinga frá Eistlandi sem áhuga höfðu á að hitta íslenska starfsfélaga.
Auglýst eftir umsóknum um styrki til námskeiða í íslensku
Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki til námskeiða í íslensku sem eru ekki hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi. Áformað er að verja allt að 120 m.kr. til íslenskukennslu útlendinga árið 2018*. Umsóknarfrestur er til 5. desember 2017, kl. 16:00.
Áhrifamatsskýrsla um SME áætlun Horizon 2020
Út er komin áhrifamatsskýrsla um SME áætlun Horizon 2020 (The SME Instrument), en hlutverk hennar er að veita litlum og meðalstórum fyrirtækjum styrki til nýsköpunar.
Kynningarfundur um Nordplus norrænu menntaáætlunina
Kynningarfundur um Nordplus norrænu menntaáætlunina verður haldinn 1. nóvember í Veröld, Húsi Vigdísar Finnbogadóttur hjá Háskóla Íslands, kl. 15:30 – 17:30. Farið verður yfir Nordplus áætlunina og þær breytingar sem verða á nýrri áætlun fyrir árin 2018-2022.
Námskeið um náms- og starfsráðgjöf í atvinnulífinu
Vel heppnað námskeið um náms- og starfsráðgjöf í atvinnulífinu var haldið 19. og 20. október sl. Að námskeiðinu stóðu EPALE , vefgátt í fullorðinsfræðslu og Evrópumiðstöð náms- og starfsráðgjafar, sem eru verkefni í umsjá Rannís, sem og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Norræna samstarfsnetið um menntun fullorðinna (NVL) og Fræðslusetrið Starfsmennt.
Vinnuáætlunum Horizon 2020 fyrir árin 2018-2020 hefur formlega verið hleypt af stokkunum
Vinnuáætlunum Horizon 2020 fyrir árin 2018-2020 var formlega hleypt af stokkunum í dag og er áætlað að um 30 milljörðum evra verði útdeilt til rannsókna og nýsköpunar síðustu þrjú starfsár áætlunarinnar.
Erasmus+ umsóknarfrestir 2018
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur auglýst umsóknarfresti í Erasmus+ áætluninni fyrir árið 2018.
30 ára afmælishátíð og afhending gæðaviðurkenninga Erasmus+
Erasmus+ fagnar 30 ára afmæli í ár. Til að fagna tímamótunum býður Landskrifstofa Erasmus+ á Íslandi til afmælishátíðar í Hörpu miðvikudaginn 8. nóvember nk.
Afturköllun á úthlutun í Hljóðritasjóð
Rannís harmar þau mistök sem áttu sér stað við útsendingu á svörum til umsækjenda í Hljóðritasjóð þann 30. október sl.
Kynningarfundur um Nordplus norrænu menntaáætlunina
Kynningarfundur um Nordplus norrænu menntaáætlunina verður haldinn fimmtudaginn 16. nóvember á Hótel KEA, Akureyri, kl. 12:00 – 13:00. Farið verður yfir Nordplus áætlunina og þær breytingar sem verða á nýrri áætlun fyrir árin 2018-2022.
Úthlutun úr Máltæknisjóði árið 2017
Stjórn Máltæknisjóðs ákvað á fundi sínum 24. október sl. að styrkja fjögur verkefni á sviði máltækni um alls 38.613.000 kr. í úthlutun sjóðsins fyrir árið 2017, en það er aukning um 10 millj. kr. frá síðasta styrkári. Alls bárust níu umsóknir um styrk.